Um Grófina
Hvað er Grófin?
Grófin geðrækt er gjaldfrjálst úrræði fyrir einstaklinga 18 ára og eldri á öllum stigum bataferlisins sem vilja bæta heilsuna með geðrækt og batavinnu gegnum hópastarf á jafningjagrundvelli. Markmið Grófarinnar er meðal annars að skapa tækifæri fyrir þau sem glíma við andlega erfiðleika til að vinna í sínum bata á eigin forsendum og á eigin ábyrgð, sem og að skapa vettvang fyrir öll þau sem vilja vinna að geðrækt á jafningjagrunni, hvort sem þeir eru notendur geðheilbrigðisþjónustunnar, fagaðilar, aðstandendur eða einfaldlega áhugafólk um framfarir í geðheilbrigðismálum! Auk þess leitumst við eftir því að bæta lífsgæði þátttakenda og að standa að samfélagsfræðslu og forvörnum til að auka skilning og draga úr fordómum gagnvart þeim sem glíma við geðraskanir. Einnig viljum við stuðla að bættri nálgun í geðheilbrigðiskerfinu þar sem hugmyndir valdeflingar um notendasýn og bataferli á jafningjagrunni fái aukið jafnvægi.
Upphafið
Segja má að Grófin sé ávöxtur grasrótarhóps notenda og fagfólks, sem hittist á vikulegum fundum um tveggja ára skeið. Niðurstaða þeirrar vinnu var að byggja á 10 ára farsælu starfi Hugarafls í Reykjavík og tók Geðverndarfélagið af skarið sumarið 2013 um að taka á leigu húsnæðið að Hafnarstræti 95 og hefja starfsemina alfarið með sjálfboðastarfi, í trausti þess að önnur meginstoð Hugaraflsmódelsins, launað starf fagaðila, yrði að veruleika í fyllingu tímans með stuðningi opinberra aðila.
Grófin – áður geðverndarmiðstöð og nú Geðrækt - starfar samkvæmt hugmyndafræði valdeflingar (Empowerment) og bata (recovery), þar sem áherslan er á að einstaklingurinn taki ábyrgð á eigin bata og að öll vinna fari fram á jafningjagrunni.
Markmið Grófarinnar
1
Tækifæri
Við viljum veita fólki tækifæri á hlutverkum til sjálfseflingar, aukinnar virkni og bættra lífsgæða.
3
Þekking
Við miðlum þekkingu og reynslu af bata og bataferli til geðræktar.
2
Forvarnir
Við leggjum upp úr því að draga úr fordómum og vinna að forvörnum.
4
Samvinna
Við viljum efla samvinnu við aðila sem vinna að geðheilbrigðismálum.
VON - BATI - SAMFÉLAG